PEACE

laugardagur, október 21, 2006

Stuð að eilfífu..oh ó..

Sjæse hvað það var mikið stuð í gær, eitt besta kvöld ever bara :) Mættum á Silfur um átta leytið og byrjuðum á að panta fordrykk og þjónninn var nú ekki í minsta vafa um hvaða drykk okkur langaði í... BLUEBERRY MOJITO it was mmmmmm :) Og þeir áttu eftir að verða ansi mikið fleiri yfir kvöldið, besti drykkur í HEIMI, er að segja ykkur það!

Allavega maturinn var GEÐVEIKUR, þjónustan var GEÐVEIK, stuðið var GEÐVEIKT :)

Ég fékk mér dádýratartar í forrétt, sækó gott. Lilja fékk sér risahörpuskel sem ég myndi fá mér næst hún var besti forréttur sem ég hef smakkað. Strákarnir fengu sér humar, hann klikkar aldrei :)

Í aðalrétt fengum við okkur öll andabringu með humri nema Gunni fékk sér kálfakjöt. OMG hvað þetta var gott, slurp hef ekki smakkað betri mat held ég. Með matnum fengum við dömurnar okkur Sikileyskt hvítvín sem var líka eitt albesta hvítvín sem ég hef smakkað. Það og Mojito en það var sko alltaf passað upp á að það væri mojito í glösunum hjá fólkinu :)

Í eftirrétt fengum við dömurnar okkur snickersrétt sem var algjör killer. Náðum ekki að smakka eftirrétt strákanna.. förum ekkert nánar út í það :) Get reyndar sagt ykkur að í hvert skipti sem við Lilja fórum í dömuherbergið þá fór rafmagnið og maður sat í svarta myrkri að skvetta af sér... spes :) Og enn meira spes var hljóðið þarna inni hahahaha einhver svona fuglasöngur og náttúrúhljóð... voða notó :)

Sátum svo bara og sötruðum mojoto fram yfir miðnætti og ég reyndar smakkaði líka white russian til að hafa smá fjölbreytni í þessu og hann var líka svakalega góður :) Upp úr hálf eitt var svo drifið sig á Sálarball á Players og þar hélt stuðið áfram, dansaði til kl.04 en þá var ballið búið og Maja líka. Gat varla gengið (þreytt í fótum) svo við drifum okkur heim og þegar ég vaknaði í morgun var bara næstum engin þynnka í gangi - það toppaði þetta alveg :)

Allavega mæli 200% með Silfur - ótrúlega góður staður! Og svo var auðvitað félagsskapurinn bestur - takk æðislega fyrir okkur :)

föstudagur, október 20, 2006

Át og ekkert annað en át..

Át-hátíðin byrjar snemma þetta árið hjá mér. Yfirleitt byrjar þetta upp úr miðjum nov en nei í ár byrjaði þetta fyrripart okt. Ég sé varla tilganginn í því að reyna að hreyfa mig og passa mataræðið, hvernig er það hægt með svona stundarskrá framundan:

Síðustu helgi fór ég út að borða á fös og svo í matarboð á lau. Stórskemmtilegt alveg og mmm maturinn alveg geggjaður í bæði skiptin.

Þessa helgi er ég á leiðnni á Silfur í kvöld og er mjööög spennt, skilst að þeir séu með bestu mohito-ana :) Og á sunnudagskvöldið fer ég aftur út að borða og svo í leikhús - líka mjöög spennt fyrir því :)

Næstu helgi ef mér boðið í 30 afmæli - með öllu sem tileyrir þesskonar veislum :)
Ætla að reyna að vera með matarboð líka þá helgi..

Helgina þar á eftir er það heil helgi upp í bústað með öllum sem tilheyrir þessháttar ferðum..

Helgina þar á eftir er það út að borða með vinnunni - þessir dagar enda alltaf í stuði :)

Helgina þar á eftir er ég víst að fara að halda huge U2 partý.....

Og svo byrja jólahlaðborðin þar á eftir... HERREGUD!

Kannski maður þurfi einmitt mest á því að halda að passa sig akkúrat núna til þess að enda ekki eins og BÚRHVALUR... ég er þó allvega bara eins og mörgæs núna :) Ætla að reyna að halda því bara þannig, held ég sé ekkert að setja markmiðið neitt hærra en það :)

miðvikudagur, október 18, 2006

Anusha Golla

Þetta er nafnið á litlu stelpunni sem við Gunni styrkjum úti á Indlandi.

Ég var að horfa á Opruh í kvöld og meðal gesta hjá henni var fyrsti kvenforseti sem kjörin hefur verið í Afríku en hún var kjörin forseti í Líberíu í janúar á þessu ári. Það voru sýndar myndir frá Líberíu sem voru vægast sagt átakanlegar en þar hefur ríkt stríð í mörg mörg ár og Jesús það voru bara lík út um allt af mönnum, konum og börnum :( Ég vona að þessi fyrsti kvenforseti Afríku muni láta vel að sér kveða, ég er alveg viss um að ef konur væru meira við völd þá væri minna um stríð. Við bara leysum ekki máin á þennan hátt - með byssum og drápum. Erum jú vissulega oft grimmar og hefnigjarnar en málin eru þó ekki leyst með ofbeldi.

Allavega, þegar ég horfði á líkin af börnunum, á börnin sem eru á lífi en fá enga mentun, á börnin sem vantaði útlimi á vegna þess að þau höfðu orðið fyrir sprengju osfrv. þá lét ég loks verða af því að skrá okkur sem styrktarforeldra en það hefur staðið til lengi. Ég veit ekki afhverju ég var ekki löngu búin að því... einhver slugsaháttur en það virðist vera of mikið mál að þurfa að setjast niður og finna þetta á netinu! Ef það hefði verið hringt í mig hefði ég fyrir löööngu verið búin að þessu - ég segi já við ALLA símasölumenn - og Gunnar líka, sem er eiginlega ekki nógu gott.. en það er önnur saga.

Jæja ég fann umræðu á barnalandi (hvar annarsstaðar) þar sem gefin er upp slóð þar sem maður getur fundið barn til að styrkja, hún er hérna: http://www.abc.is/ABChjalparstarf/Stydjabarn/?

Um leið og maður kemur inn á síðuna er þar mynd af barni sem búið er að velja fyrir mann. Síðan getur maður flett og skoðað fleiri eða sett í leitarskilyrðin að hverju maður leitar (kyn, aldur og land). Ég gat ekki fyrir mitt litla líf flett framhjá stúlkunni sem hafði verið fundin fyrir mig og blasti þarna við mér. Hafði hugsað mér að finna stelpu á sama aldri og Hafdís Anja en ég táraðist bara þegar ég sá myndina og úff hvernig er hægt að fletta áfram eins og maður sé að skoða fatakatalog...? Stelpan er gullfalleg 9 ára dama (setti mynd í albúmið hjá Önju) sem ég mun styðja með læknishjálp, í gegnum skóla og útvega henni eina heita máltíð á dag. Ég hefði viljað hafa þær 3 en það var ekki valkostur :'( Síðan fæ ég bréf og myndir frá henni og ég get ekki beðið :) Maður getur líka sent gjafir út til barnsins eða sent pening og þau kaupa sér þær gjafir sem þau vilja og svo fær maður mynd af barninu með gjöfina sem það keypti. Þetta mun henta okkur hérna í Básbryggjunni afar vel þar sem ég hef einstaklega gaman af að kaupa gjafir handa henni Hafdísi Önju minni en hún er nú þegar orðin ofdekruð og á svo til allt. Allavega það mikið að hún suðar aldrei um neitt - ég tek því þannig að hún eigi þá allt sem hana langar í :) Nú get ég glatt annað lítið hjarta og ég get ekki beðið eftir að fara og velja handa henni jólagjöf :)

Mæli með að þið skráið ykkur gott fólk, þetta kostar skitnar 1990 kr. á mánuði og reyndar enn minna í einhverjum tilvikum las ég á barnalandinu góða (fer eftir landinu sem barnið býr í held ég).