PEACE

þriðjudagur, maí 08, 2007

Blogger?

Ég (eins og svo margir) er að spá hvort maður eigi ekki bara að hætta þessu bloggi, er varla að nenna þessu. Ætla þó að blogga örstutt núna, er að spá í að hafa þetta bara punktablogg

* Er byrjuð í nýju vinnunni og líst rosalega vel á þetta :)
* Þó er alltaf leiðinlegt að kunna ekkert... en það kemur
* Ég fór í bíó í gær á Blades of Glory og fannst hún fyndin
* Stelpan sem sat fyrir aftan mig var samt ekki fyndin
* hún hneggjaði eins og hross alla myndina...!!
* Styttist í Eurovision og ég spái okkur ekki áfram
* enda ætla ég að vera bara heima á lau, ekkert partýstand á mér
* ég er nefninlega í djammbindindi - fram til 16.maí :)
* Ég er að frjósa, það slökkti einhver á ofninum á skrifstofunni minni
* en ég er ein á skrifstofu sem hentar vel upp á hitastigið að gera
* þá get ég verið ein í hitabeltisherberginu mínu og ekkert nöldur :)
* Íbúðakaup ganga ekkert
* og ég orðin pirruð á þessu, er ekki að nenna þessu
* þetta er bara of mikið bras, úff.
* Jæja best að vinna

Adios ef ég heyri ekkert meira í ykkur.