6 VIKUR
Litla skottan mín varð 6 vikna á sunnudaginn - tíminn flýgur og allt það :) Allavega, þá varð mér ljóst þann daginn að í 6 heilar vikur hef ég borðað sælgæti á hverjum einasta EINASTA degi - herregud pínu sjokkur!
Það var því ákveðið að þetta gengi ekki lengur og frá og með gærdeginum er nammi ekki leyft nema um helgar og helst bara á laugardögum. Hef nú oft reynt þetta áður og það hefur ekki gengið vel hingað til en ég ætla samt að reyna þetta einu sinni enn, það gengur allavega ekki að borða sælgæti daglega :(
Annars kem ég sterk inn í þyngdarkeppnina okkar Gunna, hann er með 400 gr forskot eftir 2 vikur en hann var sko með 1,5 kg í forskot eftir fyrstu 4 dagana svo ég er orðin bara bjartsýn á að ég taki þetta á endasprettinum sko ;)