Það var verið að benda mér á að ég væri bara ekkert búin að blogga um helgina... þetta var svo mikil leti helgi að ég gerði barasta ekki neitt held ég ;) Jú ég skrapp í bíó á Godsend með henni Bibbu og litlu bumbunni :) Myndin var svona la la myndi ég segja.. allavega eftir að hafa heyrt Mæju trasha hana... en ég varð nú pínu hrædd, var næstum búin að grípa í Birnu í einu atriðinu, haha aðeins að ruglast á henni og Gunna ;)
Núna er ég að drekka Pepsi Max... það er enginn maður með mönnum nema drekka þetta Max ekki satt? Og það er sæmilegt svo sum, skárra en diet pepsi og diet kók allavega, en sykurgosið finnst mér nú best :( Ég finn alltaf svo vont bragð af diet drykkjunum, bragð sem ég tengi einhverra hluta vegna við krabbamein.. og finnst mér þetta því svona krabbameinsbragð... Held það sé vegna þess að mér var einu sinni sagt að ef ég myndi drekka nokkur baðkör af Fresca þá gæti það valdið krabbameini, það er þetta sama bragð af Frescanu! En Maxið virðist nú vera laust við þetta óbragð svo ég ætla að sjá hvort ég geti vanið mig á það ;)
Á morgun fæ ég vonandi fréttir sem ég er búin að vera að bíííííða eftir og er það að gera mig GEÐVEIKA :( Allir að krossa putta að ég fái svar á morgun og það jákvætt ;)