PEACE

miðvikudagur, október 04, 2006

Þér biðjið um blogg já..

Og blogg þér fáið :) Bara pressa á manni sko!!

Hef reyndar ótrúlega fátt að segja.. sem er kannski ástæða bloggleysis. En ég ætla að skella mér á konukvöld Debenhams í kvöld að versla mér smá MAC vörur - ekki veitir af að reyna að hressa aðeins upp á útlitið...!!

Úff það var næstum bara dimmt í morgun þegar ég keyrði í vinnuna... oj það finnst mér ekki gaman! Finnst samt fínt að hafa myrkur á kvöldin og kveikja á fullt af kertum (já ILMKERTUM María) það skapar eitthvað svo kósý stemmingu :)

Ég held að maðurinn minn sé að reyna að drepa mig úr hræðslu... veit ekki hvort það er líftryggingin sem heillar.. eða hvað. Við erum að venja stelpuna af því að koma upp í á morngana (mamma ekki ORÐ um það hvenær ég hætti!!!) og við höfum kveikt á ganginum því annars verður hún svo HRÆDD!! (skil það reyndar vel því þegar Gunni er ekki heima hef ég það kveikt muhahaha) Allavega þá slökkti einhver ljósið eina nóttina (Gunnar sver að það hafi verið kveikt) og ENGIN veit hver slökkti það.. allavega engin á heimilinu - shit!! Og svo var Gunni að segja mér í fyrradag að stelpan vaknar stundum á nóttinni og biður pabba sinn að draga fyrir gardínurnar í eldhúsinu (sem er lengst frá herberginu hennar) svo það sé ekki horft á hana á nóttunni.... WTF...??? Úff mér finnst allt svona svo hrikalega krípí eitthvað og mun ekki geta sofið næst þegar Gunni fer út á land....!!

sunnudagur, október 01, 2006

AÐ SPRIIIINGA

Mmmm var að koma af Hereford steikhús og er að SPRINGA. Við Rebekka skelltum okkur út að borða og vorum sko alveg á því að þetta ættum við að gera oftar haha en maturinn var alveg sjúklega góður og þjónustan líka rosalega fín svo ég mæli 100% með þessum stað :)

Mikið rosalega er búið að vera gott veður undanfarið, bara alltaf sól og 15°C í september -munur ef sumarið hefði verið svona gott :) Og október byrjar vel, skellti mér út að labba í dag og var alveg hreint að stikna í sólinni, klæddi mig sko alltof vel. Vona að haustið verði svona yndislegt og veturinn svo bara mildur... og fljótur að líða :)

Styttist heldur betur í jólin, ætli jólavörur fari ekki bara að koma allsstaðar :) Auðvitað er það alltof snemmt, ég myndi helst vilja sjá þær bara svona um miðjan nóvember í fyrsta lagi en það er alltaf verið að flýta þessu! Ég er búin að vera að velta aðeins fyrir mér með jólatréið því aðfangadagur er á sunnudegi en ég hef alltaf skreytt tréið á síðasta í aðventu. Er búin að ákveða að skreyta það bara á 3ja í aðventu í staðinn svo það sé nú eitthvað uppi fyrir jólin :) Oh já næsta frí sem við fáum saman famelían er um jólin svo mann er pínu farið að hlakka til en ég mun ekki blogga neitt meira um jólin í bráð - lofa því :)