PEACE

laugardagur, janúar 05, 2008

UPDATE :)

Allir að spyrja hvort innréttingar séu komnar... enda hef ég talað um fátt annað undanfarna mánuði *gubb*! Þær eru komnar í hús, liggja hér eins og hráviði um allt í pakkningunum... maður getur varla gengið inn á bað án þess að hrasa um eitthvað drasl!

Smiðirnir eru hinsvegar ekki komnir, það er allt eins :) Þeir koma ekki fyrr en á miðvikudag, takk fyrir takk. Og svo sagði smiðurinn þegar ég talaði við hann að hann vonaðist til að það vantaði ekki svona mikið í mínar innréttingar eins og hjá þessum hérna við hliðina á mér sem hann var að setja upp hjá um daginn... WTF!! Ég get rétt ímyndað mér hvort þetta hafi allt skilað sér miðað við okkar heppni í þessum húsnæðismálum! En Gunnari þykir ég stundum heldur svartsýn (skrítið!!) svo best að vona bara það besta..

Ég minntist einhverntíman á það að ég fyndi ekki mikla þörf fyrir hreiðurgerð á meðgöngunum mínum en líklega væri það vegna þess að ég skipti um húsnæði þegar ég er ófrísk. Mér finnst rosalega gaman að koma mér fyrir og gera fínt hjá mér í nýja húsnæðinu svo það er eflaust mín hreiðurgerð :) Núna er mig farið að dreyma (bókstaflega) handklæði, skálar, punt og dót sem á að kaupa og setja upp þegar innréttingar eru komnar, ég sver það að ég bara hugsa ekki um annað! Lá í baði áðan og hugsaði um handklæði og kertastjaka inn á bað, sá hreinlega fyrir mér í hyllingum hillur með handklæðum í og kertum ofan á.... bara sææækó.

Jæja best að kíkja á Desperate Housewifes og láta mig dreyma um eldhúsinnréttinguna í leiðinni.. og hellurnar og ofninn og vaskinn og uppþvottavélina og bara alla þessu dýrlegu hluti sem henni fylgja :o) Það verður ótrúlegt að þurfa ekki að vaska upp og tannbursta sig í baðinu t.d. (orðið erfitt að beygja sig vegna bumbunnar), bara lúxuslíf sem bíður manns sko!

fimmtudagur, janúar 03, 2008

GLEÐILEGT ÁR

Oh þessi jól voru bara æði og allt fríið sem maður fékk, jú sem og áramótin, þrusustuð hjá minni með óáfenga kokteila og læti :o)

Innréttingarnar ekki komnar ennþá.. er verið að taka þær úr gámi akkúrat núna skilst mér... reyndar eitthvað bras með það vegna veðurs, þær mega ekki blotna! Svo er spurning hvenær þær verða settar upp, ég var að ath hvort það yrði ekki örugglega um helgina en það var víst engu hægt að lofa.... SHIT ég finn að ég er að verða pínu óþolinmóð aftur og það hjálpar engum en herregud 2 mánuðir án innréttinga gera mann frekar pirraðan á ástandinu.

Svo koma borðplötur ekkert fyrr en nokkrum vikum seinna, urrr hvað er það? Það er ekkert búið að klára innréttingarnar nema borðplötur séu komnar... þær setja heildarsvipinn á þetta!! Við erum heppin ef þetta verður allt klárt áður en barnið kemur, og við keyptum hvað.. í ágúst eða sept!!

Bumban stækkar sem aldrei fyrr, held ég sé bara að springa! Finn núna eiginlega í fyrsta sinn (fyrir utan ógleðina) að ég sé ólétt. Fann smá brjóstsviða í gær í fyrsta sinn á ævinni, það er pínu erfitt orðið að beygja sig mikið og svo er bumban endaulaust fyrir muhahaha alltaf að reka hana í eitthvað :) En ég er annars bara mjög hress, vonandi helst það bara fram að fæðingu ;)