PEACE

fimmtudagur, júlí 21, 2005

Í sól og sumaryl :)

Magnað að fá svona gott veður í sumarfríinu sínu, búin að vera bara í sól og ca. 20°C í rúma viku og virðist ætla að vera þannig áfram :þ

Við erum búin að brasa mikið og hafa það súpergott í sumarfríinu, vorum í sveitinni fyrir norðan og fórum meðal annars í bústað á Sigló og skemmtum okkur ekkert smá vel, barnlaus og góð hehe. Þar var spilað Pictionary og Actionary og ég held ég hafi náð lélegustu atriðum í báðum spilum.... annarsvegar þegar ég var að leika Jagúar í Actionary, ég hló svo mikið að ég meig næstum á mig hahaha og svo teiknaði ég víst asnalegasta bikar sem sést hefur.... ekki mín deild að teikna!

Fórum líka í útilegu í Laugarás og það var æði, þetta er æðislegur staður :) Það var samt svo heitt að maður gat varla andað og á þessari viku hefur okkur Gunnari orðið ljóst að við erum bara ekki fólk sem meikar mikinn hita og því ekki mikið sólarlandaefni... höldum okkur við barnlausar borgarferðir held ég bara :) Ég er nú samt búin að sitja þónokkuð úti í sólinni og steikja mig en ég meika það ekki í marga marga tíma á dag í marga marga daga.... og Gunni meikar enn minna hahaha :O) En ég vil nú samt hafa sólina, bara svo það sé á hreinu, svo gaman að kíkja í húsdýragarðinn, sund, labbitúr ofl í sól og svo getur maður bara tekið góðar pásur hér inni í millitíðinni :o)

Nágrannarnir mínir halda örugglega að ég sé eitthvað skrítin, ég er alltaf úti á palli í "pottinum" þessa dagana en potturinn er sko skærappelsínugulur og uppblásin hahaha og í eigu Hafdísar Önju :) En það er bara svooooo notalegt að liggja þar, ekki eins heitt og að sitja og steikjast á stól! Og svo finnst Hafdísi það rosalegt sport að mamma hennar nenni með henni í pottinn svo allir græða, nema kannski grannarnir sem þurfa að horfa upp á mig strippast á pallinum..... :S

Jæja vildi bara láta vita að ég er á lífi þó ég sé löt að blogga í fríinu, ætla að fara skella mér út að labba eða á línuskauta ;) Veðrið á kvöldin þessa dagana er GEGGJAÐ, búið að vera logn og hlýtt og kvöldsól sem er bara yndisleg, ekki of heit en gefur svo æðislega birtu, bara gaman að skella sér út að hreyfa sig þegar það er svona veður!!