PEACE

föstudagur, júní 24, 2005

Friday, bloody friday ;)

I love it, föstudagur enn á ný það er bara alltaf föstudagur ;)

Þessa helgina á að hanga inni og horfa á LOST seríuna! Og svo er jú stefnt á að henda í eina köku eða svo, húsmóðirin í mér á það til að brjótast fram um helgar :O)

Annars er nú fátt í fréttum, Gunni er í fríi í dag og OJ hvað það er leiðinlegt að fara út þegar hann er að fara aftur að sofa.... algjör VIBBI :'( En ég á jú besta mann í heimi svo hann vaknaði með mér í morgun og tók til dömuna á meðan ég tók mig til svo ég gæti sofið nokkrum min lengur, maður er svo lengi að gera þetta allt einn ;o) Mæja er alltaf að segja mér að ég sé ofdekruð..... en mér finnst rétt að koma því á framfæri að þó svo að þið heyrið kannski ekki mikið af því (þar sem Gunnar blaðrar ekki svona mikið eins og ég) þá er ég alveg voðalega góð við hann líka - allavega reyni að vera það.. :O)

Jæja best að vinna pínu áður en maður fer í mat, hafið það súpergott um helgina ;)

þriðjudagur, júní 21, 2005

Nudd

Ég er alltaf að deyja í hálsinum og hausnum þessa dagana :( Í morgun vaknaði ég og gat bara varla hreyft hálsinn hann var svo stífur svo það þýddi ekkert annað en að finna nuddara og það STRAX. Fann eina í símaskránni sem nuddar bara heima og tekur því minna fyrir það svo ég dreif mig þangað - alltaf að spara ;) Var samt pínu smeik... en þar sem hún var lærður nuddari hugsaði ég með mér að það væri alveg jafn mikið happ og glapp með nuddara ef ég færi á stofu!!

Jæja mætti á svæðið og hún læt nú bara nokkuð vel út og mér leið strax aðeins betur, síðan byrjaði ballið ;) Hún reyndar nuddaði mjög vel og kunni greinilega sitt fag en úff konan var á einhverri allt annari bylgjulengd en ég.... hún var öll að spá í orkunni minni.... og orkuflæðinu og orkustöðvunun.... úff púff not my cup of tea! Hún hélt höndunum yfir öllum þessum 0rkustöðvum (til að ég myndi finna allt flæðið) aðeins of lengi fyrir minn smekk... ég átti að finna tilfinningarnar, sálina, gleðina og eitthvað meira.... ég er bara alveg agalega lítið fyrir svona andlegt orkudót, vildi bara gott nudd til að losa um hálsinn minn!! Svo sagði hún mér hvernig neikvæð orka kastaðist aftur tilbaka og talaði mikið um sálina... og lífsgæðakapphlaupið.... og að áfellast sjálfan sig, hvernig það færi með mann... og hve gleðin væri góð og að þetta kæmi sko allt innan frá..... já osfrv. osfrv.

Þetta var sem sagt pínu spes ;) Ef ég þekki ekki nuddarann vil ég helst bara að hann segi ekki neitt heldur bara nuddi mig - og þá líkamlega, ekki andlega!!

Jú og svo var reyndar tvennt sniðugt sem hún benti á, í fyrsta lagi sagði hún að ég andaði ekkert.... og þegar hún sagði það þá gerði ég mér grein fyrir að það var rétt hahaha ég hélt alveg niðri í mér andanum! En það var nú bara vegna þess að ég er með pínu snerti fóbíu... hef alltaf verið svona, finnst ferlega óþægilegt þegar fólk snertir mig of mikið og líður því ekkert alltof vel hjá ókunnugum nuddara og ég færi sko ALDREI til karlmanns, ég myndi örugglega alveg gleyma að anda þá og hreinlega andast á bekknum! Undantekning á snertifóbíunni er að sjálfsögðu famelían mín, hana á ég til að drekkja í knúseríi ;) En þegar ég var í skóla í USA var þetta hálfgert vandamál því kennarinn minn vildi alltaf vera að faðma mann í tíma og ótíma (eldri kona, voða ljúf) en ég tók það bara ekki í mál, eini krakkinn sem sagði bara NO THANK YOU VERY MUCH PLEASE :o)

Og svo sagði nuddarinn að ég væri svo til liðamótalaus...!! Ég hef aldrei á ævinni verið stirðari heldur en ég er núna en fyrir nokkrum árum þá var alveg sama hvaða teygjur ég gerði ég bara fann ekki fyrir þeim og ég gat setið í splitti eða spígati, já og bara legið svoleiðis líka :) En allavega þá fann hún það með því að nudda mig að ég væri mjög liðug og mér fannst það hálf magnað, þarf endilega að fara að liðka upp gamla líkamann og sjá hvort ég kem honum ekki í splitt og spígat aftur ;)

mánudagur, júní 20, 2005

Mánudagur til mæðu...?

Ekki hjá mér, neibbs mér finnst þessi mánudagur bara stórfínn :O) Var að telja og það eru aðeins 15 vinnudagar eftir í sumarfrí, HOW SWEET IS THAT :) Það er lítið planað í sumarfríinu nema að slappa af og svo á reyndar að taka svona viku og ferðast aðeins um landið okkar, stefnum norður í land að skoða Ásbyrgi, Dimmuborgir, Mývatn ofl. og ég er bara mega spennt orðin!

Við vorum einmitt fyrir norðan um helgina og það var bara fínt fyrir utan það að á 17.júní var svona 5°C og RIGNING, urrr hvað það var kalt og ég var sko ekki ánægð þegar ég sá í sjónvarpinu blíðuna sem var hér í Reykjavík :( !! En þetta var fín afslöppun og alltaf gott að fá langa helgi ;)

Annars fátt í fréttum, vil samt skila batnaðarkveðju til Mæju vinkonu, svona er að stunda keiluna af svona miklu kappi - maður lendir bara í íþróttameiðslum :O) Gleymdi alveg að minnast á það en þegar ég fór með vinnunni í keilu átti Mæja fyrsta skotið (talar maður um skot...??) og keppnisskapið var svo rosalegt að hún skutlaðist með kúlunni lengst inn á braut og veltist þar um (í hringi sko) í fína kjólnum sínum..... GARRRGGGG hvað við hlógum mikið og salurinn klappaði fyrir henni enda hafa aðrir eins taktar bara ekki sést í þessari íþrótt :O)