PEACE

föstudagur, ágúst 06, 2004

Nætur-galin..

Hvar varst þú kl.04:00 í nótt? Allavega ekki í 10-11 í hamrahverfinu því ég var sko sú EINA sem var stödd þar, skrítið... Er svo þreytt núna að ég á bara erfitt með að hafa augun mín opin úff *geisp og stírur*

Hitti matvælafræðigengið í gær og það var ekkert smá gaman eins og alltaf :) Kom heim um hálf tólf og þá var daman ný sofnuð því það hafði ekki fundist eitt snuð í íbúðinni... úps! Þá höfðu smá mistök átt sér stað, hún fer með Gunna á leikskólann á morgnana með snuð en svo skil ég þau alltaf eftir... gleymdi að segja Gunna að hún væri bara með eitt snuð á leikskólanum... En hún sofnaði sem sagt snuðlaus svo það átti bara að redda þessu í dag en svo vaknaði mín hálf fjögur í nótt og grét sáran og sagði mömmu sinni að duddan væri skemmd :( Úff ég fann svo til með henni að ég brunaði upp í 10-11 og keypti snuð, það voru reyndar bara til snuð fyrir 0-6 mán. en ég var ekki að fara að rúnta um kl.4 í nótt að leita að stærra snuði svo hún fékk pííínu litla duddu en hún var sátt og sofnaði fljótt öllum til mikillar ánægju ;)

Skoðaði 2 íbúðir í gær með brósa en ég er svona sérlegur fasteignaráðgjafi... svona sjálfskipaður muhahaha ef ég þekki þig og þú ert að fara að kaupa þér íbúð þá færðu sko ekki frið fyrir mér :)

fimmtudagur, ágúst 05, 2004

Breyttir tímar - barna tímar..

Ég varð pínu andvaka í gær, andvaka af áhyggjum vegna 2 ára afmæli dótturinnar! Ég er ekki að nenna að halda eitthvað svaka upp á það, haldið þið að henni sé ekki bara nokk sama..? Fékk svo þá snilldar hugdettu að bjóða bara krökkunum sem hún þekkir, þegar hún fæddist var um 2 að ræða, Veroniku og Almar Óla en svo fór ég að telja þetta í gær og núna 2 árum seinna eru þeir svona 20 stk... uuuuu... svo sú hugmynd var ekkert svo frábær lengur :( Sjáum til hvað við gerum, nenni ekki að spá meira í þetta í bili!

Gunnar var með áhyggjur líka, áhyggjur af Bónus pokanum sem stelpan fór með á leikskólann muhahahahahha ég hló svo mikið að ég hélt ég yrði ekki eldri :´) Hann sagðist hræddur um að hún fattaði það hvað hún væri hallærisleg með regngallann og dótið sitt í Bónuspoka og sagði mér að drífa mig í búð að kaupa flotta tösku strax í hádeginu í dag... ætli ég hlýði ekki svo dóttirin verði nú ekki fyrir andlegum skaða vegna Bónus pokans ;) Þetta minnti mig á það þegar ég var með Mæju, Önnu Siggu og Rebekku að skralla eitthvað hér um árið og ég var með dótið mitt í Bónus poka, hélt að Rebekka og Anna Sigga myndu skilja mig eftir þeim fannst ég svo MEGA HALLÓ... mætti því með fjólubláu íþróttatöskuna mína núna seinast, með bláu, gulu og grænu rosa flottu munstri á hliðinni sem ég keypti í Sverige árið 1991... Ekki var mér minna strítt í það skiptið.. held ég hafi nú bara hlotið smá skaða af þessu og skil núna hvað Gunnar er að fara, kannski ég kaupi flotta tösku bara handa mér líka í hádeginu ;)