PEACE

miðvikudagur, febrúar 06, 2008

SHIT

Úff ég opnaði þessa frétt áðan og ég bíð þess ekki bætur.. *GUBB*
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/02/05/
tarantulan_reyndi_ad_flyja/

Ef ég myndi mæta svona kvikyndi einhversstaðar yrði það mitt síðasta, ég hef bara ekki séð það ógeðslegra!!

Ég er frekar ánægð með að heyra að Clinton hafi komið vel út úr forkosningunum í USA, ég held með henni - GIRL POWER :) Líst reyndar líka vel á Obama - verð þó að viðurkenna að mér finnst mega fyndið hvað nafnið er líkt Osama... Obama is out to get Osama... muhahaha :) Ég meina Osama er hataðasti maður Bandaríkjanna, bara pííínu skondið :)
McCain er eflaust ágætur líka, mér finnst hann bara í það elsta fyrir svona embætti...! En þegar maður miðar við núverandi forseta Bandaríkjanna líta allir frambjóðendur bara vel út :)

Dæjan er mætt á Klakann, brún og sæt eftir langa dvöl í Tælandi :) Ekkert smá gott að fá hana heim enda var ég dauðhrædd um að hún fær sér að voða þarna úti, alltaf að lenda í einhverjum hremmingum!!

Jæja hef bara ekkert meira að segja á þessum miðvikudagsmorgni, best að halda áfram að jobba!