PEACE

mánudagur, júlí 21, 2008

AFMÆLISSTUÐ

Við Gunni fórum í afmæli á laugardagskvöldið inn í Hafnarfjörð til hennar Gunnu sem er orðin 50 :o). Karítas Eva harðneitar að taka pelann, ég reyndi alla vikuna að fá hana til að drekka úr honum en það var sko ekki sjens. Ég þurfti því að bruna úr Hafnarfirði og hingað í Kólguvaðið 2svar um kvöldið, þetta var svona 45 min prósess í hvert skipti en ég er ekkert smá ánægð að hafa samt komist í afmælið því það var geggjað stuð :) Og á rúntinum fram og tilbaka setti ég bara FM partý tónlistina í botn og hélt mér í stuði hehe.

Í fyrstu gjöf ákvað ég að skipta um föt þar sem við sátum úti í blíðunni en ég er soddan kuldaskræfa og það verður nú pínu tjillí á kvöldin. Fór því í ullarkjól með rúllukraga hehe og sótti myndavélina sem ég hafði gleymt heima.

Í seinnigjöf var mér orðið pínu illt í fótunum og skipti því um skó. Losaði líka myndavélina sem var orðin full - það voru því ýmsir kostir sem fylgdu því að skreppa heim af og til hehe ;)

Ég setti inn fullt af myndum úr afmælinu neðst á síðuna hjá Hafdísi Önju, pínu svekkt að ég náði engum myndum af Pétri sem fór á kostum með stand up en ég var ekki komin með myndavélina þegar hann steig á svið :( Ingi hennar Gunnu tók nokkur frumasamin lög sem voru alveg hreint æðisleg, mikið hlakka ég til að hlusta á diskinn hans þegar hann kemur út ;)