1/2 ÁRS BRÚÐKAUPSAFMÆLI :)
Ég er varla að trúa því að á morgun sé hálft ár síðan ég gifti mig! Mér finnst við bara hafa verið hérna heima hjá mér í gær og Fía aðalmeiköppían að mála mig og Birna hárgreiðslusnillingur við það að fá taugaáfall því kamburinn vildi ekki festast muhahaha ég hélt ég myndi gifta mig með nokkur göt á hausnum en það hefði líka verið allt í lagi :) Það varð þó ekki því hún er snillingur og reddaði þessu eins og ég vissi að hún myndi gera ;)
Ohh þetta var svo gaman, ég sem var ekki búin að gifta mig því ég hélt það væri leiðinlegt! I was wrong - það gerist... oft ;) Var að skoða allar myndirnar úr brúðkaupinu og ég er að spá í að endurnýja heitin á hverju ári með tilheyrandi partýum muhahaha :o)
En við skötuhjúin erum að fara í sumarfrí, síðasti dagurinn í vinnunni á morgun :) Má kannski líta á þetta sem svona míní honeymoon, verður æði að tjilla á pallinum í 20°C og sól í 3 vikur með Dæju systir hahahaha :o) Dæja keypti sko sundlaug á pallinn, sagði að hún væri handa stelpunni en við erum nú búin að átta okkur á að hún var nú ekki eingöngu hugsuð handa henni, við Dæja létum fara vel um okkur þar í dag ;)
Jæja aldrei að vita nema maður bloggi eitthvað í sumarfríinu - ef ekki þá bara hafið það súpergott í sumar, það er nú varla hægt annað í þessari blíðu hérna á Klakanum ;)