PEACE

miðvikudagur, febrúar 14, 2007

HEY JUDE

Valentínusardagurinn í dag. Við hjónakornin höldum sjaldan upp á hann, okkur finnst hann halló... en ég var nú samt að vona að Gunni hefði ætlað að koma mér á óvart og með því að koma með Jude Law í heimsókn... virðist þó ekki ætla að verða :)

Jeminn ef maður rækist nú á hann úti á götu.. ég held sko að hann sé nr.1 á stjörnulistanum mínum.. Tom Cruise fauk út af honum þarna um árið og ég skammast mín nú bara fyrir það í dag að hann hafi nokkurntímann verið þar.. Og Goggi Cloon er að eldast óþarflega hratt svo jááá ég held bara að hann Jude sá á toppnum :)

Ég er búin að vera að bæta við þættina sem ég er að fylgjast með. Það er þætti fyrir utan raunveruleikasjónvarp en ég horfi nánast á ALLA raunveruleikaþætti.. Þess utan fylgist ég með Desperate Housewifes, Prison Break, 24, House og Grey's og í hópinn hafa bæst Veronica Mars, Jericho, Heroes og var ég að fá Dexter sem ég er að spá í að kíkja á í kvöld :O) Það er pínu tímafrekt að fylgjast með þessu öllu en ég virðist einhvernveginn alltaf hafa nægan tíma til að gera það sem ég vil... hvort sem það er að horfa á sjónvarp, hitta skemmtilegt fólk eða eiga kósý stund með famelíunni :O) Hvað er fólk að brasa allan daginn sem hefur aldrei tíma í neitt...?