PEACE

miðvikudagur, apríl 18, 2007

Að tala með hreim

Ég á vinkonu sem á dóttur sem virðist tala með indverskum hreim. Mér finnst það frekar fyndið þar sem hvorki faðir né móður stúlkunnar koma frá Indlandi en þessi hreimur er mjög sterkur - allavega þegar móðirin líkir eftir dótturinni...

Móðurinni líkir reyndar svolítið til Indverja... talar mikið með indverskum hreim (ótrúlega flottum) og svona er pínu indversk í töktum :)

En að öðru þá styttist í Dublin og ég orðin mega spennt. Hef aldrei komið þangað en skilst að kráarstemmingin þar sé frábær og svo eru bæði River Island og H&M í Dublin - það dugar mér :)

Hafið það gott og gleðilegt sumar :)

þriðjudagur, apríl 17, 2007

SHOOTER

Fór í bíó í gær á þessa mynd, Shooter. Fannst hún rosalega góð og eiginlega verður maður að sjá hana í bíó.

Er loks að lesa Ilminn. Var búin að heyra að hún væri geðveik og eins og svo oft áður gerði ég mér of miklar vonir. Hún er ágæt en langt frá því að vera besta bók sem ég hef lesið. En hún er svona svolítið öðruvísi sem er ágætt :)

Ég var að fá Botox kremið mitt í hendurnar. Sem og BESTA appelsínuhúðarkrem í heimi. Það er auðvelt að pranga inn á mig dóti og ég á virkilega von á því að vera hrukku- og appelsínuhúðarlaus eftir nokkrar vikur :)

Kv.Maja - smooth :)