BLING BLING
Já maður er mættur á Klakann og geng nú undir nafninu "Maja Bling Bling" :) Það var ekki hægt að kaupa föt í Porec en þar fékkst gull á góðu verði og dressaði maður sig því bara upp með gulli í stað fata - ekki slæmt :O)
En ferðin var algjört æði, aaaaaðeins of heitt svona þegar sólin var sem sterkust (upp undir 35°í forsælu) en það var þó skýjað inn á milli alla dagana nema einn og þá notaði maður tímann og rölti í bænum sem var bara æðislegur og drakk kokteila og keypti gull :) Það var pínu erfitt að fara heim í dag og skilja frábæru ferðafélagana eftir í aðra viku en tilhlökkunin yfir að hitta stelpuna reddaði þessu enda var bara æði að knúsa skottu-lottuna þegar heim var komið!
Ég tók helling af myndum sem ég ætla að henda inn á síðuna hennar Önju í kvöld eða á morgun þannig að forvitnir geta kíkt þangað inn :) Þær eru reyndar mjög einhæfar... alltaf sama fólkið og alltaf það sama að gerast - kokteilar eða verið að snæða enda það eina sem við gerðum í heila viku fyrir utan að liggja í sólbaði og ekki set ég inn bikínimyndir hahahaha :)