Was up dogs?
Ekki allir hressir? Allavega allir hressir hér á bæ, svo mikið er víst - og kominn tími til!!
Þá kysi ég nú frekar hann Tomma litla krús.... hann lítur allavega vel út ennþá..... sjæse!
Stelpan mín fékk hita á sunnudeginum fyrir viku síðan og var með hita fram á fimmtudagskvöld takk fyrir!! Hún var rokkandi frá rúmum 38° og alveg upp í 40°C, úff litla skinnið. Ég var nýbúin að vera að tala um það í vinnunni að það væri örugglega ár síðan ég hefði þurft að taka veikindadaga út af veikindum barns... týpískt ekki satt!
Á fimmtudagskvöldið skrapp ég með vinnunni minni aðeins út á lífið, byrjuðum á Rossopomodoro þar sem ég fékk rooosalega góðan túnfisk, nammm :) Hann minnti þó meira á hval þegar diskurinn kom því þetta var engin smá sneið maður, fjúff en ljúf var hún :þ Fórum svo á nornafyrirlestur sem var svona lala.. ég var ekkert alveg að finna mig þarna.. og svo var kíkt á smá pöbbarölt sem var svakalegt stuð :O) Leituðum að Jude Law um allan bæ (okkur langaði bara til að heilsa upp á hann sko) en hann var no where to be found... BÖMMER.
Var svo drulluslöpp á föstudag og laugardag. Var hérna heima hjá stelpunni á föstudag og lágum við bara saman upp í sófa og höfðum það kósý og lágum við líka bara megnið af laugardeginum þar... nokkuð ljúft bara :) Horfðum jú á þessa hræðilegu Júróvisjón keppni, úff ótrúlega lítið spennandi maður, mér var alveg sama hvaða lag vann því það var ekkert þeirra gott..
Í kvöld buðum við Audda og Lilju í mat og ræddum aðeins Amsterdam ferðina okkar en það er kominn smá ferðafílingur í mann, ooohhh þetta verður svo gaman :)
Og að lokum langar mig að benda á að ég er sko ekki sú eina sem fellur fyrir framtíðar sækóum... þetta virðist vera ættgengt :) Einn ónefndur var nú ekki lítið hrifinn af þessari dömu....
Þá kysi ég nú frekar hann Tomma litla krús.... hann lítur allavega vel út ennþá..... sjæse!
Bloggarar
Litlir bloggarar
Myndir
Eldra blogg