PEACE

þriðjudagur, janúar 02, 2007

ÁRIÐ!

GLEÐILEGT ÁR ALLIR

Oh ég trúi því ekki að jólafríið sé bara BÚIÐ!! Þetta leið bara aaaalltof hratt enda búinn að vera yndislegur tími :)

Ég skellti mér á aldeilis óvænt djamm á föstudaginn síðasta. Var að rabba við Birnu á msn um 23 leytið og hún á leið á djamm í Bryggjuhverfinu og spurði hvort ég vildi kíkja með. Ég var nú komin á náttsloppinn og undir sæng að horfa á imbann og hélt því ekki en Gunni skildi ekkert í mér og ég ekki heldur.. ákvað því að skella mér bara :) Við drifum okkur í party upp úr miðnætti og svo um kl.2 var ákveðið að bruna í bæinn og hitta Önnu Siggu á Oliver. Shit hvað það var erfitt að fá leigubíl og enn meira shit hvað það var TROÐIÐ á Oliver en við létum það nú ekki á okkur fá og skemmtum okkur kongunglega - alveg til kl.05, ótrúlegt hvað gamla konan er allt í einu farin að endast á djamminu q :O)

Gamlárs var svo bara æðislegur. Fengum helling af frábæru fólki í mat til okkar (vorum 11 í mat) og eftir matinn var spilað, horft á skaupið, sprengt 3 flugelda (sem voru víst ekkert voðalega töff...) og svo spilað og hlegið (stundum grenjað úr hlátri) til kl.05 en þá var ég bara alveg búin á því og kominn tími til að fara í háttinn. En mikið svakalega var gaman, takk fyrir frábært kvöld öll þið sem mættuð :O)

Mér fannst skaupið bara fínt - hló helling enda finnst mér Jón Gnarr einn sá fyndnasti maður sem fyrirfinnst :) Ég saknaði ekki pólitíkusarbrandaranna.. og enn síður spaugstofudjóksins... svo ég var bara vel sátt ;)

En jæja vonandi leggst nýja árið vel í ykkur - ég held það verði æðislegt :)