PEACE

fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Komin úr sumarfríi :)

Jæja þá er sumarið bara BÚIÐ, komið haust takk fyrir. Allavega er mér alltaf kalt núna á morgnana brrrrr.

Það er nóg um að vera á næstunni, ég fer til Danmerkur líklega 3svar núna á rúmum mánuði og til New York einhverstaðar þar inn á milli :) Síðan er íbúðin að fara á sölu og vonandi eignast ég nýja fljótlega :) Já og svo er haustfagnaður bráðum í vinnunni og svo árshátíð fljótlega eftir það svo það er bara allt að gerast!!

Djí ég er ekki búin að blogga í einhverja mán en hef samt ekkert að segja... hversu pathetic er það...? Ég hef aðeins verið að horfa á imbann og Jesús síðastliðna 2 daga hef ég bara setið og grenjað! Í fyrradag var það Extreme Makeover sem ég var bara ekki að meika - skil ekkert í mér að horfa á þessa þætti! Síðan horfði ég á Opruh í gær sem var ekki um neitt nema hræðileg dauðsföll... hvað er málið með sjónvarpið í dag? Ég þarf virkilega að fara að horfa á eitthvað meira hresandi :)

Jæja látum þetta gott heita í bili, adjö.