Þessi helgi var helguð honum Donald Trump :) Ég kláraði næstum heila seríu af The Apprentice á laugardaginn, horfði á 9 ÞÆTTI takk fyrir og horfði á 2 á fös.kvöldinu og 3 í gær svo ég er bara næstum búin með seríuna, á bara 2 þætti eftir!! Þetta er alveg geggjuð sería rétt eins og hinar, mér finnst þetta einn besti raunveruleikaþátturinn!
Annars var helgin bara róleg og ljúf, vorum úti í allan gærdag á þvælingi með stelpuna og úff hvað ég var orðin þreytt um kvöldið, held það reyni meira á mig en hana að vera á svona þvælingi, enda orðin gömul kona ;)
Núna er átaksnámskeiðið mitt hálfnað og það gengur svona upp og ofan... en ég er held ég búin að losna við ca.2 kg sem er nokkuð skv. áætlun! Stefndi á 4-5 á námskeiðinu og ég ætla að reyna að halda mig við það markmið! Síðan er það bara út að labba í sumar en í haust er nú bara alveg spurning um að hóa Olgunum saman aftur, stóðum okkur svo vel síðast ;)