PEACE

föstudagur, júlí 28, 2006

GRILLVEISLAN

Við héldum svaðalega grill/pallaveislu í gær :) Einn velti mikið fyrir sér ástæðunni og hélt að það yrði hjónavígsla í leiðinni lol :) en nei ástæðan fyrir veislunni var sú að Gunnar var að kaupa sér nýtt grill og það er svo HJÚMONGUS að það tekur því ekki að kveikja á því fyrir færri en 14 hahaha :) Síðan var öllum hent út á pall eftir matinn og sátum við þar og drukkum og tefldum því okkur Gunna fannst nauðsynlegt að nota hitarann sem við keyptum í fyrra og höfum bara kveikt einu sinni á.... :) Enda var bara yndislegt að sitja úti í blíðunni og ohhh þetta var SVO GAMAN :)

Við grilluðum fyllta hamborgara, voru fylltir með parmaskinku og gráðosti NAMM og svo var heimagerð geggjuð hamborgarasósa með, takk fyrir uppskriftirnar Fjóla :) Og ég setti líka í ofn heimagerða kartöflubáta sem voru einnig rosalega góðir :þ Og svo bjó ég til svaðalega SANGRÍU maður - versta var að við vorum bara þrjár sem gátum drukkið hana hinar dömurnar gátu bara smakkað og þar sem ég gerði Sangríu fyrir 16 manns þá var sko nóg til fyrir okkur 3 og er skemmst frá því að segja að ein okkar komst varla heim í nótt hahaha hún var pínuoggupons ölvuð af Sangríunni :) En hún fór vel í mig, fann bara passlega á mér en maginn er í smá uppnámi í dag...

Það eru myndir úr grillveislunni neðst í júlí albúmí hjá Hafdísi Önju :)

Golfið gengur ágætlega nema Gunni er að rústa þessu, kerlingarnar á námskeiðinu báðu hann í dag að slá fyrir sig nokkur högg því hann væri svo góður og nær að slá svo svakalega langt.... það biður ekki nokkur maður mig um að sýna eitt né neitt... enda er ég ekkert sérlega góð í þessu hahaha :)

mánudagur, júlí 24, 2006

Golfarinn

Ég ELSKA að vera í fríi með fjölskyldunni, just looooooove IT q:o) Ekki hefur veðrið skemmt fyrir þessar tæpu 2 vikur á klakanum, hef fengið sól og hlýjindi næstum alla daga sem er í raun ÓTRÚLEGT miðað við hvernig sumarið er búið að vera!

Vorum fyrir norðan um helgina í sól og blíðu, var reyndar SKÍTAKULDI á föstudaginn en þá horfði ég bara á 1/2 seríu af House og heila af ANTM og hafði það sko súpergott :) Shit hvað nýjasta ANTM serían er GEÐVEIK, miklu betri en sú sem er verið að sýna núna aðallega vegna þess að stelpurnar eru miklu sætari!! House er alltaf bestur, hann er skemmtilegasti karakter ever!!

Svo er maður búin að vera í sundi, Húsdýragarðinum, í verslunum... það er dýrt að vera í fríi... o.s.frv. getið lesið meira um það á síðunni hennar Önju minnar :)

EN við skötuhjúin fórum í GOLFKENNSLU í dag, hversu svalt er það? Hversu gömul eru hjón (par - erum víst ekki gift) orðin þegar þau fara saman í golfkennslu..? Allavega þá var þetta ógeðslega gaman og mig hlakkar til að fara aftur á morgun en við verðum sko í kennslu alla vikuna :) Ég er nú ekki góð enda í fyrsta sinn eiginlega sem ég snerti kylfu en ég var ekki eins hræðileg og ég átti von á - sem er gott :)

Jæja best að halda áfram að undirbúa grillpartý ársins sem verður á pallinum okkar á miðvikudaginn - nennið að krossa allar fingur og allar tær fyrir mig að við fáum sól og blíðu..? Danke Shcön :)