PEACE

miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Hellú pípúl :)

Oh þetta sumarfrí er búið að vera svoooo yndislegt að ég bara hyperventilera þegar ég hugsa um að því sé alveg að ljúka :( En við erum að fara til London í september sem verður líklega vikuferð svo það er allavega eitthvað að hlakka til :) Svo styttist í jólin og svona.. en ekki orð um það meir!

Ætla að vera innipúkinn héld ég bara um versló, er bara ekki að nenna að fara neitt - algjör sko! Það er bara svo ótrúlega notalegt að vera heima hjá sér, ég held ég versni bara með árunum, verð heimakærari með hverju árinu sem líður... hvar endar þetta?

Og að lokum smá komment á Rock Star. SHIT hvað Ryan var GEÐVEIKUR, oh hann söng þetta svo vel og var svo hrikalega flottur eitthvað!! Vann sér inn einn aðdáanda (reyndar tvo - nefni engin nöfn..) sem hefur aldrei tekið eftir honum fyrr með þessari frammistöðu :o)