PEACE

laugardagur, janúar 05, 2008

UPDATE :)

Allir að spyrja hvort innréttingar séu komnar... enda hef ég talað um fátt annað undanfarna mánuði *gubb*! Þær eru komnar í hús, liggja hér eins og hráviði um allt í pakkningunum... maður getur varla gengið inn á bað án þess að hrasa um eitthvað drasl!

Smiðirnir eru hinsvegar ekki komnir, það er allt eins :) Þeir koma ekki fyrr en á miðvikudag, takk fyrir takk. Og svo sagði smiðurinn þegar ég talaði við hann að hann vonaðist til að það vantaði ekki svona mikið í mínar innréttingar eins og hjá þessum hérna við hliðina á mér sem hann var að setja upp hjá um daginn... WTF!! Ég get rétt ímyndað mér hvort þetta hafi allt skilað sér miðað við okkar heppni í þessum húsnæðismálum! En Gunnari þykir ég stundum heldur svartsýn (skrítið!!) svo best að vona bara það besta..

Ég minntist einhverntíman á það að ég fyndi ekki mikla þörf fyrir hreiðurgerð á meðgöngunum mínum en líklega væri það vegna þess að ég skipti um húsnæði þegar ég er ófrísk. Mér finnst rosalega gaman að koma mér fyrir og gera fínt hjá mér í nýja húsnæðinu svo það er eflaust mín hreiðurgerð :) Núna er mig farið að dreyma (bókstaflega) handklæði, skálar, punt og dót sem á að kaupa og setja upp þegar innréttingar eru komnar, ég sver það að ég bara hugsa ekki um annað! Lá í baði áðan og hugsaði um handklæði og kertastjaka inn á bað, sá hreinlega fyrir mér í hyllingum hillur með handklæðum í og kertum ofan á.... bara sææækó.

Jæja best að kíkja á Desperate Housewifes og láta mig dreyma um eldhúsinnréttinguna í leiðinni.. og hellurnar og ofninn og vaskinn og uppþvottavélina og bara alla þessu dýrlegu hluti sem henni fylgja :o) Það verður ótrúlegt að þurfa ekki að vaska upp og tannbursta sig í baðinu t.d. (orðið erfitt að beygja sig vegna bumbunnar), bara lúxuslíf sem bíður manns sko!