PEACE

miðvikudagur, apríl 18, 2007

Að tala með hreim

Ég á vinkonu sem á dóttur sem virðist tala með indverskum hreim. Mér finnst það frekar fyndið þar sem hvorki faðir né móður stúlkunnar koma frá Indlandi en þessi hreimur er mjög sterkur - allavega þegar móðirin líkir eftir dótturinni...

Móðurinni líkir reyndar svolítið til Indverja... talar mikið með indverskum hreim (ótrúlega flottum) og svona er pínu indversk í töktum :)

En að öðru þá styttist í Dublin og ég orðin mega spennt. Hef aldrei komið þangað en skilst að kráarstemmingin þar sé frábær og svo eru bæði River Island og H&M í Dublin - það dugar mér :)

Hafið það gott og gleðilegt sumar :)