AÐ SPRIIIINGA
Mmmm var að koma af Hereford steikhús og er að SPRINGA. Við Rebekka skelltum okkur út að borða og vorum sko alveg á því að þetta ættum við að gera oftar haha en maturinn var alveg sjúklega góður og þjónustan líka rosalega fín svo ég mæli 100% með þessum stað :)
Mikið rosalega er búið að vera gott veður undanfarið, bara alltaf sól og 15°C í september -munur ef sumarið hefði verið svona gott :) Og október byrjar vel, skellti mér út að labba í dag og var alveg hreint að stikna í sólinni, klæddi mig sko alltof vel. Vona að haustið verði svona yndislegt og veturinn svo bara mildur... og fljótur að líða :)
Styttist heldur betur í jólin, ætli jólavörur fari ekki bara að koma allsstaðar :) Auðvitað er það alltof snemmt, ég myndi helst vilja sjá þær bara svona um miðjan nóvember í fyrsta lagi en það er alltaf verið að flýta þessu! Ég er búin að vera að velta aðeins fyrir mér með jólatréið því aðfangadagur er á sunnudegi en ég hef alltaf skreytt tréið á síðasta í aðventu. Er búin að ákveða að skreyta það bara á 3ja í aðventu í staðinn svo það sé nú eitthvað uppi fyrir jólin :) Oh já næsta frí sem við fáum saman famelían er um jólin svo mann er pínu farið að hlakka til en ég mun ekki blogga neitt meira um jólin í bráð - lofa því :)