PEACE

þriðjudagur, október 30, 2007

LÖT

OMG hvað ég er löt, ég er að berjast við að vera dugleg að vinna í vinnunni og svo þegar heim er komið er bara lagst upp í sófa og ekki gert handtak.. enda sést það á íbúðinni!!

Mér finnst ekki taka því að gera neitt því við erum jú að flytja. En það lítur út fyrir að maður þurfi að taka einn góðan slurk í hreingerningu áður en við flytjum - get ekki búið svona í 2 vikur í viðbót :) Það vantar allt "nesting" í mig sem flestar óléttar konur virðast finna fyrir.. hef aldrei fengið þessa þörf. Kannski vegna þess að ég flyt alltaf þegar ég er ólétt.... bý bara til algjörlega nýtt hreiður í stað þess að breyta því gamla :) Viðurkenni að mig hlakkar mikið til að gera allt tilbúið í nýja húsinu og það styttist í þetta allt saman.

Oh svo bara verð ég að segja ykkur óléttínum frá meðgöngunuddinu sem ég fór í á lau, það var HEAVEN. Fór í Laugar í nudd sem heitir Mamma Mía og var þetta tæplega 2 klst dekur og mæli ég sko 100% með því.... mmmmm....