Long time no see :)
Já já bloggið er nú bara næstum dautt, svei mér þá.
Það er alltaf BRJÁLAÐ að gera hjá mér, ég sver það og tíminn þýtur bara áfram og maður ræður ekki neitt við neitt - verður orðin eldri borgari áður en maður veit af.
Kreisí að gera í vinnunni því ég er að taka við af einni sem er að hætta og þarf að reyna að læra allt 1,2 og 3. Er ROSALEGA ánægð með nýju vinnuna, þvílíkt snilldarkompaní sko :) Allir svo jákvæðir og hressir, mórallinn bara æði og ekki bara í minni deild heldur er sama hvern maður hittir á göngunum allir svo súpernæs eitthvað :) Þetta er nefninlega ekkert lítið kompaní svo ég er alveg hissa hvað allir eru opnir og allir þekkjast vel.
Ég er á miljón í ræktinni... átti svo sem von á að það myndi gerast þegar ég færi yfir til Birnu íþróttafrík :) Hún dregur mig meira að segja á laugardagsmorgnum í ræktina - geri aðrir betur sko :) En við erum á fullu í skvassi og það er nú bara eitt skemmtilegasta sport EVER. Jiii þetta er alveg eitthvað fyrir mig og ótrúlega fljótt að koma ;) Svo er ég líka byrjuð í spinning hjá henni Lilju minni en það eru bestu tímarnir og shit hvað maður svitnar - fjúff!! Og mér tókst að draga gamla spinning félagann með í þetta hehe já já við píurnar erum bara mættar í gymmið aftur eftir árs pásu hjá annari og næstum árs pásu hjá hinni muhahahha bara flottastar :O)
Helgarnar fullpakkaðar eins og alltaf, maður er í því að reyna að raða niður matarboðum og skemmtilegheitum en það er nú bara gaman ;) Svo fer maður að fara í útilegu, hefðum liklega kíkt í eina um helgina ef spáin væri ekki svona glötuð en í staðinn er það bara matarboð á fös, útskrift á lau og svo partý á lau.kvöld ;)
Jæja þá vitið þið hversvegna bloggið er hálf dautt ég hef bara varla tíma til að hugsa hvað þá meira :) En ef þið eruð dugleg að kommenta reyni ég að halda þessu eitthvað áfram - þarf ekkert að kommenta á færslurnar sko bara segja mér eitthvað sniðugt muhahahaha eða vera dugleg að blogga sjálf ;)