GÓÐAN DAG
Allir hressir? Ef ekki, þá bara spáið í að það er að koma helgi.. og þeirri síðustu var nú bara að ljúka.. er ég sú eina sem er bara ekki að ná að halda í við tímann? Djís það verða komin jól áður en maður veit af (þessi var fyrir þig Mæja muhahahaha :)
Vikan búin að vera æði, ég setti met í fiskáti - prufaði 2 teg á þriðjudag en það er nú bara rúmur ársskammtur hjá mér ;) Fékk í hádeginu skötusel á Tilverunni sem var bara alveg ágætur og svo bauð Anna Fanney mér í steinbít um kvöldið - annarsvegar í hvítlauk og hinsvegar í sojasósu, grillaða og þeir voru GEGGJAÐIR, miklu betri en á Tilverunni :) Kannski hafði það áhrif að maður fékk hvítvín með muhahaha en ég held samt ekki ;)
Búin að vera dugleg í ræktinni - ekki að það sjáist, það skiptir ekki nokkru máli hvort ég hangi heima í sófa og eti á mig gat eða hvort ég mæti daglega í ræktina og eti ekkert nema gras og skyr... ég er alltaf eins - FAT!! En það er svo gaman að hitta Fjólu og Lilju í ræktinni svo ég dríf mig í tíma og þess á milli út að labba. Og ég get reyndar sagt að þolið er MUN betra en það var sem skiptir nú mestu, finnst agalegt að hafa ekki orku í neitt!!
Ég er svo með matarboð á morgun og jiii mér finnst svo gaman að spögulera hvað ég eigi að vera með og prufa eitthvað nýtt!! Er búin að finna svaka girnilegan rétt, vonandi verður hann ætur ;)
Jæja best að halda áfram að vinna, vildi bara henda á ykkur smá kveðju.