PEACE

föstudagur, mars 16, 2007

Smá föstudagsblogg :)

Ohh hver elskar ekki föstudaga, ég bara spyr? Allavega I LOVE THEM :)

Í kvöld ætlum við skötuhjúin að kíkja í Perluna að borða með nokkum félögum og ég er sko búin að grandskoða matseðilinn og ákveða hvað ég mun eta :) Er líka búin að benda Gunna á hann en einhvernveginn efast ég um að fólkið sem við ætlum með sé búið að skoða hann... svo ég verð að reyna að vera þolinmóð á meðan aðrir ákveða sig lol :) Úff ég skil ekki hvað þetta getur stundum tekið fólk langan tíma, ég er alltaf búin að skoða matseðilinn og komin allavega með hugmyndir þegar ég mæti á staðinn... enda er ég alltaf nær dauða úr hungri þegar ég fer út að borða og vil bara fá matinn minn STRAX takk fyrir :)

Á morgun er svo matarboð hjá vinahjónum okkar... mmm hlakka líka til þess, ég ELSKA að borða góðan mat :)

Já nóg um að vera þessa helgi sem og aðrar, eigið góða helgi öll :)