PEACE

þriðjudagur, janúar 30, 2007

DAUÐI OG DJÖXXXX

Shit maður, hef sjaldan verið jafn pirruð og akkúrat NÚNA. Danafífl - oj viðbjóður.

Er búin að reyna allt til að koma mér í betra skap, búin að fá mér bjór - og annan. Búin að fá mér súkkulaði, bland í poka, snakk... og bara ALLT en það er ekkert að virka :( Ákvað að kanna hvort að það hefði eitthvað að segja að blogga - að hleypa þessu út... er ekki bjartsýn á það.

Var pirruð fyrir leikinn, síðustu dagar búnir að vera allt annað en skemmtilegir og þetta fór bara alveg með það!!

Kann einhver töfraráð við pirring? Ég er farin að halda að það sé bara ekkert hægt að losna við hann.... Guð hvað ég er fegin hvað ég verð sjaldan svona pirruð - þetta er bara allt annað en skemmtilegt!! Þetta segir manni bara eitt - EKKI HORFA Á ÍÞRÓTTIR, ÞAÐ ER MANNSKEMMANDI.

Spurning um að hætta að kvarta yfir fúla fólkinu (þoli ekki fólk sem er alltaf fúlt og pirrað) og vorkenna því frekar að líða svona alla daga...

En allavega þá eru strákarnir búnir að standa sig eins og HETJUR. Bara svo ótrúlega sorglegt að vera svoooooona nálægt því að komast áfram - GRENJ :(