PEACE

fimmtudagur, nóvember 23, 2006

Trött

Úff hvað ég er þreytt. Ég er svo þreytt að ég sofnaði á leiðinni í vinnuna... zzzzz...

Lífið þessa dagana er nú ekkert úber spennandi sko... reyni yfirleitt að vinna aðeins lengur því það er kreisí að gera í vinnunni. Síðan er farið beint í ræktina sem er alltaf jafn gaman... og eftir það brunað heim til að kenna Dæju eðlis- og efnafræði sem eru jú skemmtilegustu fög í heimi - NOT... Og svo er farið að sofa og maður vaknar bara þreyttur!

En ég held þetta sé aðallega ræktin, það tekur smá tíma að ná upp þoli og verða ekki svona ógeðslega þreyttur eftir æfingarnar... Í dag ætlum við Dæja að skella okkur í veggtennis - ég er spennt, held það verði ógeðslega gaman :)

En allavega, það er að koma helgi og allir í góðum fíling. Þarf reyndar að vinna, fara í ræktina og kenna um helgina en reyni að hugsa sem allra minnst um það :) Ætla líka að djamma á laugardaginn með súper skemmtilegu fólki og hlakka mikið til en svo er líka komin djamm pása. Helgin þar á eftir verður nýtt í að skreyta og hafa það kósý með famelíunni...oooohhh get ekki beðið :O)