PEACE

mánudagur, júní 19, 2006

Gönguát..

Skellti mér í göngutúr í kvöld, er hreinlega ekki að meika Sporthúsið þessa dagana svo ég er bara dugleg að fara út að labba/hlaupa. Gat ekki hlaupið í kvöld þar sem mér er svo illt í ökklunum (bara þegar ég hleyp, líklega lélegir skór) svo ég bara gekk rösklega, tók svo smá sveig og stoppaði í sjoppunni, keypti fullt af nammi og át það allt á leiðinni heim....

Ef maður borðar á meðan maður gengur núllast það þá ekki bara út..?
Oh er frekar svekkt með sjálfan mig að hafa klúðrað þessu svona, hvar er aginn maður?

Annars var ég hjá vinkonu minni áðan sem eigi gengur einsömul.... lol ég sökka í svona setningum :) Allavega þá er ekkert að gerast, vildi bara láta vita þar sem ég er stanslaust spurð, allir orðnir svo spenntir að sjá litla Ögmund (eða Ögmundu) :)