PEACE

mánudagur, mars 27, 2006

Hinir sköllóttu og fallegu :)

Haldið þið að það eigi ekki að spóla bara svolítið fram í tímann í þáttunum The Bold and the Beautiful hahaha það á að spóla áfram um 2,5 ár - hvorki meira né minna!! En það var nú tekið fram að áhorfendur þurfi lítið að óttast... þátturinn er þrátt fyrir það á nánast sama stað enda hefur ekkert gerst i í þessum þáttum síðan þeir byrjuðu - Jesús hver nennir að fylgjast með þessari hörmung?

Ég sé einstaka sinnum smá af þessu þegar ég bíð eftir grönnum og ég gæti gubbað!! Hér kemur smá svona highlight:

Brook er búin að vera gift bræðrunum tveimur og pabba þeirra
Taylor er búin að sofa hjá sömu mönnum held hún hafi ekki gifst þeim öllum...
Þær eru samt alltaf bara að slást um Ridge, virðast hafa slysast á hina feðgana...
Brook svaf reyndar líka hjá tengdasyni sínum... svona óvart...
Og Ridge á eftir að sofa hjá dóttur sinni sem reyndar kom í ljós að var ekki dóttir hans heldur hálfsystir... æi svo kom í ljós að hún er ekki heldur hálfsystir hans svo hann bara neglir hana...
Taylor dó fyrir nokkrum árum og Ridge giftist Brook en svo kom í ljós að Taylor dó ekki heldur var föst á einhverri eyju hjá Omar og þegar hún kom tilbaka fór Ridge aftur til hennar
Taylor á eftir að deyja AFTUR... en viti menn það kemur í ljós AFTUR að hún er ekki dáinn heldur er hún AFTUR á eyjunni hjá Omar og hún kemur tilbaka AFTUR og Ridge fer frá Brook fyrir hana AFTUR.. (hmm var ég búin að koma með þetta hérna inn áður.. ég bara man það ekki ég er alltaf eitthvað að hneykslast á þessum þáttum!!)

Finnst ykkur þetta ekki stórkostlegt sjónvarpsefni... tala nú ekki um þegar hægt er að spóla 2,5 ár fram í tímann og ekkert hefur breyst... segir það manni ekki eitthvað hahaha :O)

RIDGE GET A HARICUT!!