PEACE

fimmtudagur, janúar 05, 2006

Ótrúlegt!

Ég vil byrja á að benda á að það er nýtt blogg hér fyrir neðan, þetta er nefninlega annað bloggið í dag - ég er svo dugleg :) Eitthvað annað en Blogzterinn....??

En það sem er ótrúlegt er að finna á þessari síðu: http://www.pjus.is/kolla/index.html Ég datt inn á þessa síðu fyrir nokkrum mán og er held ég búin að lesa bloggið frá upphafi til enda - mér fannst þetta svo ótrúleg lífsreynsla hjá þessari ungu dömu!! Hún lýsir því líka svo vel í skrifum sínum hversu mikill sjúkdómur þetta er. Ég man að í einni færslunni talaði hún um að ef hún gæti bara hætt alveg að borða mat rétt eins og alkinn hættir að drekka þá væri þetta ekki eins mikið mál en það er víst ekki hægt þar sem maður þarf að borða til að lifa!! Hvernig ætli alkanum gengi að hætta að drekka ef hann þyrfti alltaf að drekka 3-4 glös yfir daginn en alls ekki meir... mér fannst þetta góð spegulering!! En þvílík útlitsbreyting á einni manneskju, ég hef varla séð það svakalegra :)