PEACE

mánudagur, janúar 16, 2006

Mánudagur til mæðu..?

Neeii mánudagar eru ágætir.. samt leiðinlegustu dagar vikunnar finnst mér!!

Helgin var æðisleg - þær eru það flestar :)

Svo er það spurningin hvort maður þurfi að fara að kíkja til læknis..... Ég er búin að vera að drepast í öxlinni alla helgina og er enn :( Það er einhver taug þar sem er alltaf að klemmast saman eða eitthvað... allavega gerist það reglulega að ég er að deyja í öxlinni og get lítið hreyft hálsinn, verð öll stíf og fæ því geðveikan hausverk :(

Síðan er ég að drepast í handarbakinu á hægri hendi. Það er kominn vökvi inn á liðinn þar... hefur gerst áður og þá þurfti að tappa af. Mér var sagt að næst þyrfti að gera eitthvað meira, þ.e. ef þetta kæmi fyrir aftur og er ég því ekkert alltof æst í að láta kíkja á þetta...

Að lokum er sælgæti farið að fara eitthvað illa í mig... líklega bara overdose...!! En ef ég fæ mér sætt á morgnana sem ég hef nú gert alla tíð þá bara svimar mig og líður geðveikt illa.

Er að spá í að safna aðeins fleiri einkennum áður en ég kíki á doksa... það er nefninlega það allra leiðinlegasta sem ég geri!!