PEACE

mánudagur, janúar 09, 2006

House, ræktin ofl.

Helgin var geðveik :) Á föstudaginn kíktu Birkir og Ingunn á okkur og horfðu á idolið með okkur og á laugardaginn kíktum við í mat til Rebekku og Ömma. Eftir matinn var spilað Cluedo sem er alveg frábært spil og svo var kveikt á Singstar og eftir það var ekki aftur snúið, meiri að segja Gunnar söng og söng og söng hahahhaa SNILLDIN ein :o)

Ég fékk 4 House þætti í viðbót af nýju seríunni og kláraði þá alla í gærkveldi, ooo þetta eru svo frábærir þættir :) Sat ein inni í kompu og hló og hló og hló maðurinn er bara óendanlega fyndin :)

Nú er það svo ræktin aftur, búin að taka gott frí yfir hátíðarnar... Mætti reyndar einu sinni í síðustu viku en vá harðsperrurnar sem ég fékk - mætti ekkert meir þá vikuna enda gat ég varla gengið. Það er samt svo skrítið að í þessar leikfimispásu hef ég verið þúsund sinnum hressari en ég var þegar við vorum á þreknámskeiðinu... ég hélt það ætti að vera öfugt....?? Núna er ekkert mál að vakna og ég er ekki sofnuð um 22 leytið.... Kvíðir því pínu fyrir að byrja aftur því ég var alltaf dauð eftir vinnu, sofnaði yfirleitt yfir grönnum og fór svo upp í rúm fyrir kl.22.. sjáum hvernig fer, við ætlum ekki í eins mikla morgunleikfimi svona vonandi næ ég að hrista af mér líkamsræktarslenið :)