DRAUMAR
Ef það eru einhverjar sögur sem mér finnst leiðinlegar þá eru það draumasögur!! EN ég ætla samt að segja ykkur hvað mig dreymdi í nótt... ég er nefninlega ennþá þreytt eftir nóttina held ég hafi bara ekkert hvílst!!
Mig dreymdi að það væri maður í íbúðinni minni sem var by the way á 5.hæð og þessi maður hafði nauðgað vinkonu minni (held að sá hluti hafi komið úr Leiðarljósi sem ég horfði á í gær). Allavega þá henti ég þessum manni út um gluggan úr íbúðinni minni og hann... dó... ég sem sagt drap hann!! Löggan kom og ég áttaði mig á því að mín biði líklega löng fangelsisvist (gleymdi greinilega að það eru engir dómar hér á Ísl. fyrir glæpamenn) og dísus panikið og skelfingin sem ég upplifði, ég hágrét og fékk ekka og læti. Og það sem meira er, ég LAUG að löggunni... ég sem get ekki logið... Ég sagði henni að þessi maður hefði nauðgað mér áður og hefði ætlað að gera það aftur og þetta hefði verið sjálfsvörn, yfirheyrslan tók um klst þar sem ég þurfti að lýsa öllu mjög nákvæmlega sem og ég gerði í gegnum ekkan og tárin.
Jæja löggan fór loksins og þá byrjaði nýtt panik, fookkkk þeir myndu koma aftur og biðja mig að segja söguna aftur (svoleiðis er það allavega í bíómyndunum) og sjensinn að ég myndi muna allt sem ég sagði því ég var að ljúga helmingnum. Hélt ég fengi taugaáfall í draumnum svo ég skrifaði niður allt sem ég mundi eftir að hafa sagt löggunni og æfði þessa sögu alla daga. Svo liðu nokkrir dagar og samviskubitið var að drepa mig og þá loks vaknaði ég og mikið ROSALEGA var gott að vakna og uppgötva að ég væri ekki morðingi!!
Já þetta var sem sagt draumurinn, ég grenjaði örugglega upp úr svefni þetta var svo raunverulegt!! En þetta er annað bloggið mitt í dag og klukkan ekki orðin hálf tíu :) Ef ykkur finnst draumasögur jafn leiðinlegar og mér kíkið þá bara hér fyrir neðan á hitt bloggið hehe :)