PEACE

miðvikudagur, janúar 18, 2006

Allt að gerast

Jájá ég keypti mér fisk í vikunni, er að reyna að standa við áramótaheitið :) Keypti Lúðusteik á 2000 kr. kílóið... Jesús hvað er málið með verðið á þessu...? En hún var góð og ég át fiskinn sem er mikilvægast :)

Líka búin að vera að fara í ræktina, maður er alltaf að reyna að vera svo heilbrigður :) Finn samt að ég stend mig betur núna í mataræðinu en þegar ég var á þreknámskeiðinu... það var svo erfitt að maður nennti ekki að taka matinn í gegn líka, allavega ekki ég :) En núna er maður í ágætis formi, mætir í ræktina 3-4 sinnum í viku og passar mataræðið - hlýtur að virka, ætla allavega að vera orðin grennri í sumar :)
Ég mæli með spinningtímum í Sporthúsinu á mán og mið kl.17:15 - BESTU TÍMARNIR Í BÆNUM :O) Líka besti kennarinn sem kennir þá hehe :)

Kann einhver sem les bloggið mitt að læsa svona blogspot bloggum? Þá má sá hinn sami hafa samband á mariablondal@hotmail.com með upplýsingum takk :)