PEACE

föstudagur, júlí 01, 2005

SÍÐASTI DAGURINN VÚHÚHÚHÚ :)

Á morgun ætla ég að fá mér súkkulaði og hlaup og smá snakk og BRAUÐ og KJÖT og og og og VÍN og bara allt sem mig langar í! Já á morgun verður sukk dagurINN en svo verður bara passað sig áfram eftir það.

Ég hefði hætt á þessu helXXX í gær ef síðasti dagurinn hefði ekki verið í dag. Vááá hvað ég var komin með mikið ógeð og orðin pirruð á þessu :'( Gunni tók Ladder 49 til að reyna að hressa mig aðeins við og mér fannst hún mjög góð en ekki var hún hressandi.... !

Hérna í vinnunni í þessari viku eru búin að vera 2 afmæli (með tilheyrandi góðgæti..), +föstudagskaffi í dag (brauð og kökur) og svo er boðið upp á köku (í tilefni af launchi á lyfi) í matsalnum í dag..... DÍSUS KRÆST segi ekki annað, ömurlegt að horfa á aðra borða kökur :'(

Jæja best að reyna að þrauka daginn, ég hefði átt að taka mér bara frí í dag og sofa af mér daginn til að meika þetta, fæ td. bara grænmeti í hádeginu....og ég er SVÖNG.... úff. GOD HELP ME.