PEACE

mánudagur, júní 27, 2005

Meiri grátur..

Jebbs sorrý, þetta er mín bloggsíða svo ég má væla hér þegar ég vil!

Kvöldmaturinn samanstóð af 5 eggjahvítum, 3 skinkusneiðum, 4 sveppum og smá broccoli.... Fyrst var ég alveg jájá þetta er allt í lagi en svo bara fékk ég ógeð eftir nokkra bita og ekki sjens að koma þessu öllu niður :'( Oj djös vibbi maður og maginn er bara í rúst eftir þetta því ég tróð í hann eins og ég gat viðbjóðnum...

En svo er ég nú svo "óheppin" að ég neyðist til að fara út að borða annað kvöld vegna vinnunnar, reyndi að koma mér hjá því vegna kúrsins en það gekk ekki svo HUMARHÚSIÐ it is! Ég er nú svo ráðagóð að ég fann bara rétt sem er mjöööög líkur Myoplex ógeðinu hvað varðar prótein, fitu og kaloríuinnihald (humar og önd í bland, nammm) og vá hvað ég get ekki beðið eftir að gúffa í mig humar í stað Myoplex... Jesús þvílík sæla ;) Átti nefninlega að borða Myoplex um miðjan dag á morgun og AFTUR í kvöldmat, sá bara fyrir mér hægan dauða sko en það virðist ætla að reddast ;)

En nú held ég að ég fari bara að sofa fljótlega, ég get sagt ykkur það að þetta veldur þunglyndi, að fá ekkert gott að borða allan daginn 2 daga í röð :'( Hvernig ætli ég verði eftir 6 daga....?? Aumingja Gunni.....!