PEACE

fimmtudagur, júní 30, 2005

ÓKÍ......

Sáuð þið Oprah í gær..? Hann Tommi minn er bara out of this world, ég vissi ekki hvort ég átti að gráta eða hlæja.... en ég ákvað að hlæja og hló mig sko máttlausa, Jesús ég var bara í krampa í sófanum fyrir framan imbann :O) Hvað kom fyrir manninn? Á hverju er hann? Sækó pækó is not sexy svo hann er sko dottinn út af topp 5 listanum mínum....!

Oprah var alltaf "Tom you've lost it, Tom you're gone.." og svo þegar hún var að reyna að fá svör frá honum þurfti hún alltaf að spyrja aftur og aftur því hann bara náði ekki spurningunum, var allur í því að hoppa upp á sófa og gera einhverja skrítna svipi... og krjúpa og gera þetta sem hann gerði með hendinni.... JESÚS þetta var svo furðulegt! "Tom concentrate on the question...." Muuuuu þetta var alveg með því fyndnasta sem ég hef séð en ég get sagt ykkur það að ef Gunni myndi haga sér svona og svo klína því á mig, segja að ástæðan væri ég, þá myndi ég senda hann á hæli..... Guð hvað ég myndi skammast mín ef maðurinn minn hagaði sér svona fyrir fram alþjóð !

Ég ætla að vona að hann Clooney minn fari nú ekki að haga sér svona, maður verður að eiga eitt svona idol þarna úti í Ameríkunni! Ég sá Ocean's 12 um daginn og ég tók ekki einu sinni eftir Brad Pitt í þeirri mynd, hann hverfur bara í nærveru Clooney's því hann er svo HOT!