PEACE

miðvikudagur, júní 29, 2005

Jódilí dódlí

Ég fór á Humarhúsið í gær og nammmmmm nammmmmm nammmmi nammmmmm hvað það var góður maturinn þar, bara með því betra sem ég hef bragðað á :þ

Kúrinn gengur rosa vel núna, allt svo gott sem ég má borða í dag svo maður er bara í stórgóðu skapi ;) Svo eru bara 2 dagar eftir eftir daginn í dag, þetta líður svo hratt að það er ótrúlegt!

Ég setti Frystikistulagið inn á MP3 spilarann minn um daginn og fór svo út að labba í fyrradag og hlustaði á textann í fyrsta sinn (kunni bara ojbara ojbara) og JESÚS þvílíkur texti!! Ég var ekki alveg að ná þessu og beið alltaf eftir að þetta væri eitthvað grín en nei svo var nú ekki ;) Hugsaði með mér að eitthvað hefði nú verið kvartað þegar þetta lag kom út (ég bjó erlendis þá held ég) og fór að spyrja Gunna út í þetta og þá mátti víst ekki spila það í útvarpinu þegar það kom út hehe, já hefur greinilega farið fyrir brjóstið á fleirum en mér.... ;) Ekki það að ég hefði heimtað að það yrði bannað sko, var bara svo hissa á textanum þar sem ég átti alls ekki von á þessu ;)

Jæja er að verða of sein á fund.. svo best að hætta að blogga, adjö!