HJÁLP!
Jæja ég vigtaði mig í morgun og á þessum 8 vikum fóru 3,3 kg! Ég var að vonast eftir 4 en verð víst að sætta mig við þetta og halda bara ótrauð áfram! Ég var líka ekki nógu dugleg síðustu 10 dagana og það hefur strax áhrif, kom einhver smá leiði í mig svo ég leyfði mér bara pínu meira en vanalega en nú er ég komin á fullt aftur í hollustuna ;) Og það sem meira er ég byrjaði í dag á einhverjum 6 daga prótein kúr sem kennarinn lét mig hafa og á honum þarf maður að drekka mikið af Myoplex og ég bara KEM ÞVÍ EKKI NIÐUR :´( Úff ég bara kúgast og kúgast þetta er svo mikið ógeð, ég má víst drekka aðra prótein drykki í staðinn, get þið plíííííís mælt með einhverjum góðum svo ég haldi þetta nú út í 6 daga??
Jæja best að reyna að klára seinni helminginn af myoplex glasinu og drífa sig svo út að hjóla, endilega setjið í kommentin ef þið vitið um góða próteindrykki!
Jæja best að reyna að klára seinni helminginn af myoplex glasinu og drífa sig svo út að hjóla, endilega setjið í kommentin ef þið vitið um góða próteindrykki!