PEACE

þriðjudagur, maí 03, 2005

Snjór öðru megin, sól og blíða hinu megin...

Þegar ég vaknaði í morgun og fór fram sá ég bara að það var glampandi sól og blíða úti, ooooo bara æði. En svo þegar ég dró frá inni í svefnherbergi (eftir að hafa búið um - að sjálfsögðu) þá sá ég bara SNJÓ á pallinum mínum.... halló hvað er í gangi..? En það er samt æðilegt veður úti núna, sól er svo til bara nóg fyrir mig og hitinn er svo bara plús svo lengi sem það er ekki rok ;)

Við Mæja mössuðum aðhaldsnámskeiðið í gær, damn hvað við verðum hot, eða *ennþámeirahot* í sumar - vú hú hú :o) Já líst bara asskoti vel á þetta og ætla sko að reyna að vera ógeðslega dugleg næstu 8 vikurnar.... ÉG SKAL!